Skólaslit hjá stelpunum

Var á skólaslitum í Barnaskólanum á Eyrarbakka og stokkseyri þar sem yngri stelpurnar tóku á móti einkunnunum sínum, flottur árangur hjá þeim. Tvíburarnir eru í góðri framför og Victoría Ósk fékk verðlaun fyrir bestan árangur í samræmdu prófunum í fjórða bekk. Þar var hún fram yfir áramót en var síðan færð upp í fimmta bekk. Hún kom verulega á óvart þar, var með áttur, níur og tíur, glæsilegur árangur hjá stelpunni. Mikið er ég stoltur af stelpunum mínum :)

Kajakaferðir á Stokkseyri fyrir alla fjölskylduna

Fjölskylduvæn skemmtun.

Róbinson Krúsó. Ca 1 - 3 klst. án leiðsagnar. Sérlega skemmtilegur möguleiki fyrir fjölskyldur og einstaklinga, þar sem fólk getur kannað á eigin spýtur völundarhús fenjanna. sund og heitir pottar eftir ferð. Hvað er skemmtilegra fyrir börnin en að svamla í vatni og fara síðan í sund?

verið vinir okkar á facebook undir www.facebook.com/kayaktours og skoðið ferðir á www.kajak.is


Viltu vinna fjölskylduskemmtun að andvirði 16.000 kr?

Farðu þá inn á Facebook síðu Kaffi Sól á Stokkseyri og taktu þátt í leiknum.

 

http://www.facebook.com/pages/manage/?act=37032058#!/pages/Stokkseyri-Iceland/Kaffi-Sol/103678573000504

 

Kaffi Sól


Styttist í kosningar

nú styttist í sveitarstjórnarkosningar, vona að allir hugsi sig vel um hverjum þeir treysta til starfa.

www.stokkseyri.is : Færeyskir fjölskyldudagar á Stokkseyri um verslunarmannahelgina

  FØROYSKT

LANDNÁM

“STOKKSEYRI”

Færeyskir fjölskyldudagar á Stokkseyri um verslunarmannahelgina

Drög að dagskrá... uppfært fljótlega

Dagana 31. júlí, 1. ágúst og 2. ágúst næstkomandi verður haldin færeysk stórhátíð á Stokkseyri. Þar verður boðið upp á skemmtun með fjölbreyttri færeyskri tónlist, færeyskum dönsum, landsleik án landsliðsmanna, Ísland-Færeyjar og fjölbreytta skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Fylgist með á www.stokkseyri.is

18 listamenn frá Færeyjum skemmta gestum á Stokkseyri í bland við frumbyggja. Simme sem gerði Rasmus lagið ódauðlegt heldur upp á að 50 ár eru frá fyrstu tónleikaferð hans til íslands. Margt verður uppi á teningnum frá fimmtudegi til mánudags, söfn, sýningar, þjónusta og afþreying opinn alla helgina. Varðeldur í fjörunni, Labbi í Glóru stjórnar fjöldasöng, kajakasigling, o.fl.
ATH. mun stærra tjaldstæði.

Fríggjadagur 31. juli
14.00 opnar myndlistakonan Vaddý málverkasýningu í Lista og menningarverstöðinni.
kl 21 Jógvan Hansen sigurvegari X-FACTOR opnar hátíðina með tónleikum
kl 22.00 DANSUR v/ JENS MARNI
Dansleikur
og styttri innsløg :
FØROYSKUR DANSUR
SIMME
HARMONIKU DANSUR

Leygardagur 1. august

15.00 Fótbóltsdystur Føroyar-Ísland (tónleikarar) Landsleikur í fótbolta án landsliðsmanna
19.00 "Heygar og Dreygar"
ANGELIKA NIELSEN & KRISTIAN BLAK
20.00 "Simme" SIMME 50-ára hald fyri hansara fyrstu konsertferð í Íslandi 1959
21.00 "Álvastakkur" ANGELIKA, KRISTIAN & HILMAR
22.30 ”Ólavur Riddararós” FØROYSKUR DANSUR
23.00 DANSUR v/ EYÐUN & TERJI
Dansleikur
og styttri innsløg :
FØROYSKUR DANSUR
SIMME
HARMONIKU DANSUR


Sunnudagur 2. august
11.30 Matiné (kirkjan) ANGELIKA NIELSEN & KRISTIAN BLAK
15.00 "Syngið við" SIMME, JENS MARNI, TERJI, EYÐUN, KIM
16.00 ”Dvørgamøy” FØROYSKUR DANSUR
22.00 bryggjusöngur með Labba í Glóru og Simme við varðeld
23.00 Glæsileg flugeldasýning
23.30 DANSUR v/ KIM HANSEN

og styttri innsløg :
FØROYSKUR DANSUR
SIMME
HARMONIKU DANSUR

 Næg tjaldstæði  og fjölskyldustemming eins og hún gerist best, upplifið færeyska stemmingu um verslunarmannahelgina. 

Barack "HAARDE " Obama: Tómur misskilningur að við séum fátæk þjóð

Við erum þjóð í erfiðleikum en erum að snúa vörn í sókn, það mun gerast hraðar en nokkrum órar fyrir. Hratt niður -  hratt upp.

 

Sumir kannast ekki við neitt  "allt í fínu lagi hér" hver hefur ekki heyrt það áður?

Það verður mun þyngra fall fyrir stórar þjóðir og mun erfiðara að rífa sig upp.

 


mbl.is Obama: Ekki sömu leið og Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vakna stjórnvöld?

ætli stjórnvöld fari að vakna af værum blundi varðandi ferðamál? hver er bjartasta von okkar íslendinga? það er ekki margt í spilunum þessa dagana en þau spil sem við höfum á hendi þarf að nota rétt....................

 

er það gert rétt?

 

svarið mitt er NEI


Jólamarkaðurinn byrjar á laugardag

Mætum og gerum okkur glaðan dag sjá nánar á www.stokkseyri.is

jola4


Skemmtileg jóla ábending til ykkar allra:

Ykkur er boðið á Jólamarkað á Stokkseyri helgina 29 - 30 nóvember

Stokkseyri: Jólamarkaður - spákona - og gleði - helgina 29-30 nóvember

Jólamarkaður verður í Lista og Menningarverstöðinni á Stokkseyri helgina 29. og 30. nóvember 2008 kl. 13:00-17:00
Bjóðum ókeypis sölubása í Lista og Menningarverstöðinni, stóra sal, fyrir alla sem vilja selja eitthvað, hvort sem er kompudót-handverk-matvara-fatnaður eða hvað sem er.
Hvetjum eldri sem yngri til að nýta sér þetta, bæði til að selja og kaupa.

 

Spákona verður á staðnum fyrir þá sem vilja forvitnast um framtíðina.

Margir hafa skráð sig með bása næstu helgi á jólamarkaðinn en það eru ennþá lausir básar fyrir þá sem hafa áhuga á að mæta með djásnin sín á markaðinn. þeir sem vilja bætast í hópinn geta haft samband í síma 895-0020 og pantað bás. Vert er að geta þess að básinn er algjörlega gjaldfrír.

Mætum öll á jólamarkaðinn á Stokkseyri og gerum góð kaup fyrir jólin

Einnig er þetta síðasta opnunarhelgi Draugasetursins og Álfa trölla og norðurljósasafnsins í vetur. Opnum uppfært safn á nýju ári.

Kaffi og vöfflur seldar í kaffiteríu Lista og Menningarverstöðin Stokkseyri.. Uppl. 895 0020/894 2910 & veislusalir@stokkseyri.is

 

Nánari uplýsingar á www.stokkseyri.is


Næsta síða »

Maðurinn á bak við orðin

Reynir Már Sigurvinsson
Reynir Már Sigurvinsson
Lifi í draumi www.stokkseyri.is

Spurt er

Er dagur núna?
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 22975

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband